Fosshótel Reykjavík - Gullfoss

Fjölnota og skemmtilegur salur sem hægt er að skipta upp í tvo sali.

Um okkur

Gullfoss er stærsti fundar- og ráðstefnusalur Fosshótel Reykjavík. Hægt er að skipta salnum upp í tvo sjálfstæða sali, Gullfoss A og Gullfoss B, eftir stærð og þörfum viðburðar. Gluggar hleypa inn náttúrulegri birtu og dimmanleg lýsing gerir auðvelt að stilla lýsingu eftir uppsetningu og stemningu.

Í heild sinni rúmar Gullfoss allt að 220 manns og hentar vel fyrir ráðstefnur, árshátíðir, sýningar, vörukynningar og móttökur. Þegar salnum er skipt upp hentar Gullfoss A vel fyrir meðalstóra viðburði, á meðan Gullfoss B nýtist sérstaklega vel fyrir minni fundi, vinnustofur og námskeið.

Með þessum möguleikum hentar Gullfoss jafnt fyrir einn stóran viðburð sem og fleiri smærri sem fara fram samhliða. Salurinn er því góður kostur þegar fagleg umgjörð og miðlæg staðsetning skipta máli.

Athygli er vakin á því að breytingargjald er rukkað fyrir aðra uppsetningu en hringborð

Þjónusta

Hafðu samband

Þórunnartún 1, Reykjavík

Senda fyrirspurn

Fosshótel Reykjavík - Gullfoss á ARVO

Fleiri veislusalir á ARVO

Bókunarkerfi: ARVO